Persónuleg kynning myndlistar

FRAFL hefur haldið utan um og verkefnastýrt slíkum kynningum við mjög góðar undirtektir. Kynningarnar felast í því að fraflarar, ásamt myndlistarmönnum, heimsækja hvers konar klúbba og/eða hópa í heimahús og kynna þar myndlistamennirnir sig og verk sín.

Kynningarnar skapa vettvang þar sem gestir fá hlutdeild í reynslu og hugmyndaheim listamannanna. Kynningin tekur rúmlega klukkutíma og er í afar óformlegum búningi og eru því gestir hvattir sérstaklega til að spyrja og taka þátt að vild.  Gestum gefst þannig kostur á mynda tengsl og að öðlast dýpri skilning á listamanninum og verkum hans. Áheyrandinn verður þannig um leið áhorfandi og fær að skyggnast inn í líf og sköpunarheim myndlistarmannsins. Við kynningarnar myndast þannig persónuleg tengsl á milli þess sem skapar og þess sem nýtur. Í lok kynninganna standa fraflarar svo fyrir sölu á verkunum til áhugasamra gesta.

Nánari lýsingu má finna hér.

Þeir listamenn sem hafa þegar tekið þátt í kynningunum eru Sara Riel, Rakel McMahon og Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir.

Þeir sem hafa áhuga á að panta kynningar fyrir hópa, hvort sem er á íslensku eða ensku, hafi samband á frafl@frafl.is eða í síma 8223717. Kynningarnar standa hópum til boða endurgjaldslaust.