MESSA
— ENGLISH VERSION BELOW—
Verkefnið MESSA miðar að því að undirbúa, framkvæma, þróa og halda í fyrsta skiptið á Íslandi sölumessu á myndlist.
Sérstaða MESSU er að það verða ekki einungis gallerí eða myndlistarstofnanir sem hafa tækifæri til þess að taka þátt, heldur gefst ungum upprennandi ”free lance” myndlistarmönnum, sem eru að hefja feril sinn, tækifæri til þess að koma að verkefninu á spennandi hátt. Með verkefninu verður þannig til ný leið fyrir þessa myndlistarmenn til þess að efla tengslanet sitt, öðlast dýrmæta reynslu innan myndlistarmarkaðarins, kynna og selja verk sín og síðast en ekki síst kynnast öðrum ungum og upprennandi listamönnum frá öðrum löndum.
Þema verkefnisins er að deila þekkingu og miðla reynslu á milli myndlistarstofnana, gallería og myndlistarmanna. Verkefnið mun hafa víðtæk áhrif á störf og tengslanet og virka sem vítamínsprauta á myndlistarmarkaðinn og þannig evrópusamfélagið í heild sinni.
Verkefnið hefur þegar hlotið styrk frá Evrópu Unga Fólksins við undirbúnings- og rannsóknarhluta Messunnar. Sjá www.euf.is fyrir nánari upplýsingar um Evrópu Unga Fólksins
— ENGLISH VERSION—
The MESSA project involves the organization and development of the first international Visual Art Fair in Iceland. The project will create new opportunities for young or emerging artists within Europe. It aims to prepare, develop, organize, and implement an international Visual Art Fair for the first time in Iceland. What will make this fair exceptional is that not only will galleries have the opportunity to participate, but special emphasis will be put towards the participation of young or emerging individual (freelance) visual artists.
The project has received funding for the preperation stage of the MESSA from the European Union Youth in Action grant. See www.euf.is for further details.



