BEAUTY SWIFT GENERATION REVOLUTION

Bókin BEAUTY SWIFT GENERATION REVOLUTION er listaverkabók sem innheldur hugmyndafræði Beauty Swift kynslóðarinnar og heimildarljósmyndir frá Beauty Camp Weekend, en atburðurinn átti sér stað í Nýlistasafninu í júlí 2009. Höfundur bókarinnar er Snorri Ásmundsson en Snorri fékk til liðs við sig þær Önnu Sóleyju Viðarsdóttur og Dagný Berglindi Gísladóttur við framleiðslu verksins.

Ljósmyndarar eru þeir Árni Már Erlingsson, Marteinn Steinar Þórsson og Spessi, myndskreytingar annast Kristján E. Karlsson, en auk þeirra kom fjöldi annarra listamanna að verkinu.

Bókin er hnittin, kaldhæðin og þaulhugsuð ádeila á 2007 og á sama tíma eins konar vakning fyrir okkur núna, árið 2009.

FRAFL sá um útgáfu bókarinnar, auk þess að bera ábyrgð á uppsetningu og framsetningu verksins, ásamt listamanninum. FRAFL sá einnig um dreifingu bókarinnar og tók þátt í kynningu hennar.

Bókin kom út fyrir jólin 2009 og má nálgast hana í helstu bókaverslunum landsins, eða hjá FRAFL.