MESSA Teaser nýlokið
MESSA Teaser 2011 lauk með málþingi í húsakynnum SÍM á mánudaginn undir yfirskriftinni: “The making of an alternative art fair in Iceland.” Nú tekur við eftirvinnsla efnis, mynda, heimilda, greina, umfjallana osfrv. og munu slíkar upplýsingar vera birtar reglulega hér á vef FRAFL, á vefsvæði MESSA Teaser: www.messa.is og á facebook: http://www.facebook.com/pages/Messa/158384830890794
Fyrir hönd MESSA Teaser, viljum við hjá FRAFL færa öllum þeim sem lögðu verkefninu lið; skipuleggjendum, þáttakendum, gestum, samstarfsaðilum, styrktaraðilum og öðrum, innilegar og ævinlegar þakkir fyrir komuna og fyrir farsælt samstarf og ómetanlegan stuðning.
Viljum við færa sérstakar þakkir til:
Sigrún Sandra Ólafsdóttir
Þorgerður Ólafsdóttir
Hanna Styrmisdóttir
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir
Jón B. K. Ransú
Ingibjörg Magnadóttir
Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Hlynur Helgason
SÍM
KEX Hostel
Evrópa Unga Fólksins
Oddi
Íslandsstofa
Björk Viggósdóttir
Þorgerður Ólafsdóttir
Klængur Gunarsson
Leó Stefánsson
Harpa Dögg Kjartansdóttir
Etienne de France
Anni Leppälä
Katie Bethune-Leamen
002 Gallerí
Lost Horse Gallery
The Corridor (Gallerí Gangur)
Crymogea
Endemi
Shauna Lorel Jones
Kristjana Rós Guðjohnsen
Karolina Boguslawska
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir
Ayanna Burrus
Edda Björnsdóttir
Darri Úlfsson
Ingi Sveinn Jónsson
MESSA Teaser gekk framar vonum og sóttu um 350 manns opnunina á föstudaginn 21. maí sl. og um 600 manns létu sjá sig á laugardaginn 22. maí. Við vonum að allir gestir hafi verið ánægðir, svo ekki sé talað um þátttakendur, en þó nokkur sala var á MESSA Teaser.
40 manns sóttu svo fyrirlesturinn í húsakynnum SIM; “The making of an alternative art fair in Iceland” og sköpuðust þar þarfar umræður og mikilvæg framlög til undirbúnings MESSA 2013.
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá opnuninni og frá hinum viðburðunum, en annars getið þið fylgst með öllu á www.messa.is. Að auki hefur e-r fjölmiðlaumfjöllun átt sér stað í kringum verkefnið. Sjá e-artnow 16. maí sl., Morgunblaðið og Viðskiptablaðið 20. maí sl., Grapevine 21. Maí sl., Bast Magazine (issue 2) og nú nýlega bættist við The Art Newspaper sem tók viðtal við FRAFL í þessari viku og er von á að stutt umfjöllun birtist þar í kringum Art Basel.
Með hlýjum þökkum og vonum um áframhaldandi jákvæðni og samstarf í framtíðinni,
FRAFL
f.h. MESSA Teaser
Margrét Áskelsdóttir, Shauna Lorel Jones, Kristjana Rós Guðjohnsen, Karolina Boguslawska, Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, Ayanna Burrus, Edda Björnsdóttir, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir
MESSA Teaser Laugardagur 22. maí 2011 á KEX Hostel
MESSA Teaser – opnun föstudaginn 21. maí á KEX Hostel
Ayanna Burrus giving the opening speech
MESSA Teaser Brain House
MESSA Teaser Symposium 23. maí 2011 í SÍM húsinu.
Messa Teaser 2011
Framkvæmdafélag listamanna – FRAFL vinnur nú að prufukeyrslu á fyrsta sölu og tengslaviðburð samtímalistar sem haldin hefur verið á Íslandi.
Viðburðurinn hefur nafnið Messa Teaser 2011 og er óhefðbundin sölu og tengslaviðburður á sviði samtímalistar, þar sem sérstök áhersla er lögð á þátttöku sjálfstætt starfandi myndlistarmanna og myndun tengsla. Þátttakendur Messa Teaser eru myndlistarmenn, gallerí, útgefendur, listfræðingar og fleiri aðilar sem tengjast myndlist á einn eða annan hátt. Nýr þátttakandi er kynntur daglega á heimasíðunni messa.is
Messa Teaser verður haldinn á Kex Hostel; Skúlagötu 28 og verður opin almenningi frá kl:11-20 þann 21. mai 2011. Haldið verður málþing með yfirskriftinni “The Making of an Alternative Art Fair in Iceland” í tengslum við Messa Teaser, þann 23. mai 2011 í húsakynum SÍM, Hafnarstræti 20.
Bakhjarlar Messa Teaser eru Evrópa unga fólksins, Oddi, Íslandsstofa og Kex Hostel .Helsti samstarfsaðili Messa Teaser er SÍM – Samband íslanskra myndlistamanna.
Nánari upplýsingar má finna á http://www.messa.is/
Einnig bendum við á ensku heimasíðu FRAFL; http://www.frafl.is/english/ og facebook síðu viðburðarins; http://www.facebook.com/home.php#!/event.php?eid=149141735153465 en þar verða reglulegar tilkynningar sem varða Messa Teaser 2011.
FRAFL í Bast Magazine

Grein um FRAFL birtist nýverið í nýjasta tímariti Bast Magazine, sem er tímarit stofnað af þremur Íslendingum búsettum í Kaupmannahöfn. Tímaritið kemur út rafrnt mánaðarlega og fjallar um listir, tísku, tónlist, kvikmyndir og menningu. Greinina skrifaði Shauna Lorel Jones, listfræðingur búsett í Reykjavík. Shauna segir frá tilkomu og stefnu FRAFL í heimi myndlistar og snertir sérstaklega á þeirri nýju þjónustuleið sem FRAFL hefur fært listamönnum – að frafla.
www.e-pages.dk/bastmagazine/19/28
www.bast-magazine.com/
Innlegg vikunnar – Ásdís Ólafsdóttir
Þú ert sjálfstætt starfandi listfræðingur, búsett í París. Hver eru þín helstu verkefni um þessar mundir?
Ég er forstöðumaður í u.þ.b. hálfri stöðu hjá Maison Louis Carré, sem er eina byggingin sem Alvar Aalto teiknaði í Frakklandi fyrir þarlendan listaverkasala og safnara. Þetta er afskaplega fallegt hús sem er enn búið húsgögnum og innréttingum arkitektsins og er opið almenningi um helgar. Það eru ýmsar uppákomur í húsinu eins og tónleikar, málþing o.fl. Ég er einnig að vinna að stórri grein um norræna hönnun sem ég var beðin um að skrifa í bók um hönnun eftir 1945 og verður gefin út hér í París. Á frönskum vettvangi vinn ég sem sagt að því að koma á framfæri og upplýsa fólk um það sem er að gerast á Norðurlöndum, og svo er ég reglulega í verkefnum á Íslandi. Þetta er fín blanda og gaman að geta hoppað milli staða og viðfangsefna. Kosturinn á Íslandi er að manni leyfist góðfúslega að fara milli greina og er síður bundinn á ákveðinn bás; Frakkar geta kennt okkur nákvæmni og fagleg vinnubrögð.
Hvernig hófst þú þinn feril á sviði listfræði?
Ég lærði listasögu í Frakklandi og vann með náminu hjá listfræðingi sem heitir Andréi Nakov og er sérfræðingur í Malewicz. Hann kenndi mér margt sem tengist faginu. Eftir námið starfaði ég m.a. í tvö ár hjá nefnd á vegum franska ríkisins sem rannsakaði stuld á listaverkum frá Gyðingum í heimsstyrjöldinni síðari. Þar sem doktorsritgerðin mín snerist að miklu leyti um húsgögn Alvars Aalto var ég einnig fljótlega í sambandi við Aalto Foundation í Finnlandi og vann með þeim að útgáfu bóka o.fl. Ég stofnaði á sínum tíma félag listfræðinga í norrænni list (CHAN) sem gefur út tímaritið ARTnord. Ég hef alltaf skrifað um hönnun og myndlist, bæði í París og á Íslandi, og tók þátt í ritun íslenskrar listasögu sem á að koma út í haust. Undanfarin ár hef ég gefið mig í ríkari mæli að sýningarstjórnun, en þar finnst mér nýtast vel sú reynsla sem ég hef sankað að mér úr ýmsum áttum.
Myndlistartímaritið ARTnord er að fara af stað með stóra farandsýningu um norræna hljóðlist. Getur þú sagt aðeins frá henni? Munu fleiri Íslendingar taka þátt í verkefninu?
Þetta er skemmtilegt verkefni sem miðast að því að sýna það sem er að gerast á sviði hljóðlistar í útjaðri Norðurlanda, þ.e. Lapplandi, Færeyjum, Íslandi, Grænlandi og Norður-Kanada. Sýningin mun fara af stað 2012 og verða á alla vega fjórum stöðum, í Svíþjóð, Íslandi, Fogo Island í Kanada og Frakklandi, og ef til vill víðar. Tímaritið gefur síðan breiðari mynd af norrænni og eystrasaltneskri hljóðlist. Á Íslandi erum við í samvinnu við Listasafn Árnesinga og Listaháskóla Íslands, svo og ýmsa góða listamenn og listfræðinga. Víðáttan er þema sýningarinnar og vona ég að okkur takist að koma því til skila á hljóðrænan og sjónrænan hátt.
Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur
www.artnord.fr
www.maisonlouiscarre.fr
Yfirlýsing listamanns – Solveig Pálsdóttir

Þörfin til að skapa er eðlislægt varnarviðbragð við myndrænu áreiti umhverfisins. Allt sem okkur ber fyrir augu verðum við að finna stað innan huga okkar. Listamaðurinn gerir þetta rétt eins og allir aðrir en verður vegna óútskýranlegrar hvatar að koma því aftur frá sér í öðru formi, og í gegnum framsetningu ljá því anda sinn og boðskap. Hlutverk listamannsins er því að mörgu leyti líkt og seiðkarls eða nornarættbálks. Þau deila sýnum sínum, vangaveltum og spám með ólíkum aðferðum til áhorfendans. Listamenn reyna að holdgera andartakið, búa til skurgoð, byggja altari, framkalla táknþrungnar athafnir í tilraun til að eiga í samtali við meðvitund sína sem og áhorfandans. Sumir fá engu viðráðið, sköpunarþörfin heltekur þá, er tungldýrið þeirra og svartur förunautur sem aldrei er sáttur. Flestir fara í ferðalag; gera sitt besta en þora eða nenna ekki fram á brúnina, á meðan örfáir hrapa fram af. Á meðan þrífast aðrir í sköpuninni, og hún veitir þeim kyrrð, ró og jafnvel einhverskonar skilning á sköpunarverkinu. Til þess að öðlast þann skilning verður listamaðurinn að hluta niður heildarmyndina til þess að greina andartakið eða efnið og öðlast betri skilning og sýn á stöðugt breytilegri heildarmynd. Tilgangur listsköpunar er miðlun hugmynda, en því fylgir ábyrgð. Hugmyndir eru hættulegar og er listsköpun hið fullkomna vopn.
Solveig Pálsdóttir
Innlegg vikunnar – Birgir Sigurðsson
Þú ert menntaður rafvirki og starfandi myndlistamaður og rafvirki, hvernig á þetta tvennt saman?
Ákvörðunin um að mennta mig sem rafvirki var tekinn löngu áður en ég fékk áhuga á myndlist. Ég hafði átt myndir á skólasýningum í barnaskóla, en myndlist var ekki nálægt mér sem barn eða unglingur. Ég starfaði sem rafvirki í mörg ár eftir sveinspróf, en myndlistaráhugi minn kviknaði þegar ég flutti til Exeter í Englandi og fór að stunda jóga og fleira til að efla tenglsin við sjálfan mig. Þar uppgvötvaði ég myndlistarmanninn í fyrsta sinn og síðan þá hefur myndlist verið stór partur af lífi mínu. Samvinna myndlistarmannsins og rafvirkjans hefur skapað það sem ég er í dag. Til dæmis hefur rafvirkinn stutt myndlistarmanninum fjárhagslega og gert starf hans auðveldara. Myndlistarmaðurinn hefur því fengið að vaxa og gera tilraunir með allskonar miðla án þess að hafa áhyggjur af fjárhagnum. Á móti hefur myndlistarmaðurinn gefið rafvirkjanum fullt af frábærum mómentum og samskiptum við fullt af fólki sem annars hefðu ekki komið til.
Hápunkturinn í samstarfi þeirra til þessa er verkið Rafvirki 123, en það gengur út á að finna listrænanan flöt á starfi rafvirkjans. Myndlistarmaðurinn dansar þar hreyfingar rafvirkjans, býr til ljóð úr listum yfir rafmagnsefni í eitt hús og notar vinnufötin í innsteningu.
002 Gallerí er staðsett í heimahúsi og rekið af rafvirkja, getur þú sagt frá hugmyndinni á bak við galleríið?
Upprunalega hugmyndin kviknaði í febrúar 2010 og þá sem stök sýning í íbúð minni með þeim listamönnum sem höfðu verið mér hvatning og fyrirmynd í myndlistinni, eins konar þakklætisvottur til þeirra. Hugmyndin þróaðist síðan yfir í stofnun heimagallerís, sem opnaði formlega laugardaginn 2. október 2010, þegar menningarfulltrúi Hafnarfjarðar Marin Hrafnsdóttir klippti á borða og opnaði 002 Gallerí með sýningu 11 listamanna, sem allir féllu undir áðurnefnda skilgreiningu.
Nú í mars lauk fyrsta sýningarári 002 Galleríis. Sýningarnar fimm gáfu hugmyndinni fljúgandi start og staðfesti að það er grundvöllur fyrir svona heimagalleríi. Styrkur þess liggur í meiri nálægð milli listaverka, listamanna og áhorfenda. Hver sýningin stendur aðeins eina helgi og eru þær fyrstu helgina í hverjum mánuði frá október til mars.
Ég sem myndlistarmaður hef mikið verið að vinna með hluti sem hafa fyrirfram ákveðna merkingu t.d. bíll = farartæki + ljósskúlptúr / aðalnámskrá grunnskóla + tónverk = gjörningur. Íbúðin mín hefur núna þríþætt notkunargildi sem heimili = vinnustofa = gallerí. Meðan á sýningum stendur flyt ég nánast öll húsgögnin út og geri þannig íbúðina að ca 60 fermetra sýningarrými. Sýningarnar fimm hafa verið mjög fjölbreyttar og hafa sumir listamennirnir gert verk beint á veggi gallerísins og íbúðin tekur því sífelldum breytingum, ekki bara sem sýningarrými heldur er íbúiðin hönnuð upp á nýtt með þessa þríþættu notkun í huga.
Eru áform um að halda áfram með reglulegt sýningarhald í 002 Gallerí á næstu misserum?
Samvinna 002 Galleríis við listamennina sem tóku þátt í fyrsta starfári 002 Galleríis var ógleymanleg og sama má segja um samskiptin við alla þá sem lögðu leið sína í Þúfubarðið á sýningarnar. Það gerði ákvörðunina að halda áfram mjög auðvelda. Núna er búið að skipuleggja 5 eða jafnvel 6 sýningar á næsta starfsári. Hver sýning hefur smá þema til að vinna útfrá til að gera fjölbreytnina sem mesta. Ef ég tek dæmi um sýningar sem eru framundan: Pör í íslenskri myndlist, verður í nóvember 2011 og íslenskar myndlistarkonur, verða í febrúar 2012. Svo eru hugmyndir um að auka starfsemi 002 Galleríis í formi video-gjörninga á netinu. 002 Gallerí er sátt við sjálft sig og sitt nánasta umhverfi og hlakkar til að hefja nýtt starfsár í haust, nánar tiltekið laugardaginn 1. Október 2011. Hægt er að fylgjast með 002 Gallerí á Facebook síðu galleríissins og skoða myndir af sýningunum á síðunni 002Galleri@bloggspot.com
Birgir Sigurðsson; rafvirki = myndlistarmaður = galleristi
Innlegg vikunnar – Elísabet Brynhildardóttir
Þú útskrifaðist frá University College for the Creative Arts árið 2007 og hefur verið að sinna ýmsum verkefnum síðan þá, getur þú sagt aðeins frá því helsta?
Það er ýmislegt sem ég hef verið að bardúsa við, til dæmis nú nýverið myndskreytti ég barnabókina Þyngdaraflið. Síðan vann ég fyrstu, önnur og þriðju verðlaun fyrir forsíðu símaskrárinnar 2010 ásamt Önnu Ingólfsdóttur, sem var mjög skemmtilegt.
En þau verkefni sem mér finnst standa upp úr eru til dæmis sería af vídeóverkum sem við Selma Hreggviðsdóttir tókum sumarið 2008 víðsvegar um landið við ýmsar aðstæður og eru þau mér afar kær. Þetta varð mjög litríkur og stormasamur tími þar sem okkur tókst meðal annars að hálf drekkja hvor annari og heil-drekkja rándýrum upptökugræjum. Úr þessari seríu hafa komið ýmis vídeóverk sem hafa verið sýnd víða.
Verkið Sjógangur frá 2010 er mér kannski ferskast í minni, en það var unnið fyrir Reykjavíkurborg ásamt Lilju Birgisdóttur og Selmu Hreggviðsdóttur, og stendur partur af því enn við Slippinn. Þetta var innsetning, kóngablátt veggverk af sjó sem gengur á land og umbreyttist í mikinn efnivið sem tengdi saman nokkrar byggingar. Verkið var gert í miklu flýti, en aðal atraksjónið var fólgið í því að vinna við hliðin á Slippnum, í takt við slippara Stálsmiðjunnar. Það er allveg einstök orka sem fylgir takti manna sem slengja málningu á skipskrokka, fullir af krafti og smá töffaraskap.
Hvers vegna ákváðuð þið að stofna til útgáfu blaðsins Endemi?
Það er rík vöntun á umfjöllun um myndlist, sérstaklega sjónrænni umfjöllun um myndlist. Þó er þetta kraftmikil og dugleg sena þar sem alltaf er eitthvað í boði, alltaf eitthvað nýtt að gerast. Það var því kannski bara náttúruleg þróun að einhver tæki þetta upp á sína arma, en það voru líka aðrir áhrifavaldar.
Til dæmis kom út viðamikil alþjóðleg könnun í haust þar sem í ljós kom meðal annars að í íslenskum fjölmiðlum er fjallað um og talað við konur í u.þ.b. 28% tilvika. Þetta eru sláandi og hreinlega þreytandi tölur. Við (stofnendur Endemi) sáum bara að það þyrfti að gera eitthvað í þessu og þar sem við flestar störfum við myndlist ákváðum við að tækla þann vettvang og leggja okkar að mörkum við að rétta þessa skekkju. Hvers vegna ekki að stofna bara almennilegt tímarit sem skapar umfjöllun um myndlist og vettvang fyrir myndlistarkonur til að sýna verk sín?
Hugmyndin er sú að helmingur blaðsíðna Endemis séu lagðar undir tvívítt gallerý þar sem myndlistarkonum er boðið að taka yfir blaðsíðurnar og sýna verk sín á veglegum pappír og í stóru broti. Í því er fólgið ákveðið anarkí og verður mjög spennandi að sjá hvernig verkin púslast saman. Hinn helmingur hýsir síðan almennar umfjallarnir, viðtöl og aðrar vangaveltur tengdar myndlist.
Anarkí er kanski ekki eithvað sem maður tekur eftir í hinni íslensku tímaritaflóru. Íslensk tímarit hafa frekar keimlíkan tón enda mörg gefin út af sömu útgáfunni, að undanskildu hinu stórmerkilega rafriti Rafskinnu, en þessir einsleitu tónar fílefla okkur að sjálfsögðu í því að hrista smá lífi í þessa tegund útgáfu.
Ég undra mig stundum á því að ekki sé leikið meira með þennan miðil; tímaritið, því það er mjög gaman að leika með þetta form. Það býður svo vel uppá að teygja sig og toga á ýmsa kanta -endalausir möguleikar. En í öllum þessum tilraunum og leik viljum við þó stuðla að því að skapa eigulegan grip úr dýrindis pappír, hlaðinn litum og gæða list.
Hvenar er áætlað að fyrsta blaðið komi út og hvar getur maður nálgast eintak?
Útgáfudagur fyrsta tölublaðs Endemis er þann 7.maí nákvæmlega. Verður hann haldinn hátíðlegur með einslags útgáfusýningu í gallerý Kling og Bang á Hverfisgötunni, en þar munu flestar þeirra sem sýna í Endeminu sjálfu sýna verk sín.
Allir eru velkomnir á opnunina en nánari auglýsingar verða birtar síðar. Á sýningunni verður hægt að kaupa eintak og gerast áskrifandi tímaritsins en það er einnig hægt á heimasíðu tímaritsins: www.endemi.wordpress.com.
Endemi verður að sjálfsögðu til sölu í öllum helstu bókabúðum, listasöfnum og galleríum. Eins er hægt að fylgjast með Endemi á facebook: http://www.facebook.com/pages/Endemi-T%C3%ADmarit-um-samt%C3%ADmalist-%C3%ADslenskra-kvenna/184911171543999
Elísabet Brynhildardóttir, ritstjóri Endemi











Gallerí Gangur er heiðursgestur MESSA Teaser.